Hvað á að gera ef þú tekur eftir leka við glugga

Gluggaleki er algengt vandamál á íslenskum húsum – sérstaklega þegar haust- og vetrarverðrin byrja. Vatnsleki er ekki eitthvað sem hættir sjálfkrafa – hann eykst með tímanum. Og jafnvel minniháttar leki getur skemmt út frá sér – eyðilagt glugga og farið í veggi og einangrun með tilheyrandi raka- og myglu.
Því fyrr sem þú bregst við, þeim mun auðveldara er að stöðva lekann og koma í veg fyrir meiri skemmdir. Hér að neðan eru gagnleg ráð fyrir húseigendur ef um gluggaleka er að ræða.
1. Stöðvaðu lekann tímabundið
Reyndu strax að stöðva lekann tímabundið til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. En ráðlegt er að biðja fagmann um að skoða kringumstæður eins fljótt og verða má.
Leiðbeiningar:
- Þurrkaðu lekasvæðið með tusku eða þurrkara til að fjarlægja raka.
- Notaðu vatnsþolna þéttingu eða tímabundið þéttiefni til að koma í veg fyrir að meira vatn leki inn.
- Ef lekinn er mikill getur verið nauðsynlegt að nota plastfilmu eða rakaþéttan dúk til að loka lekasvæðinu tímabundið utanfrá á meðan beðið er eftir viðgerð.
Ekki líta á þetta sem lausn heldur aðeins bráðabirgðaráðstöfun. Markmiðið er að vinna tíma þar til hægt er að laga vandann með varanlegum hætti.
2. Finndu orsökina
Næsta skref er að reyna að finna hvaðan vatnið kemur. Það hjálpar þér að meta alvarleikann og gefur fagmanni betri upplýsingar þegar hann skoðar lekann.
Algengustu ástæður gluggaleika:
- Mikið veðurálag (vindur, vatn og frost).
- Ónýtar gluggaþéttingar eða röng glerjun.
- Skemmdir í gluggakarmi eða múrverki sem skapa lekaop.
- Röng eða léleg (jafnvel engin) þétting milli gluggakarms og steins eða röng hönnun vatnsbretta.
Til umhugsunar: Ekki bíða – ef orsök lekans er óljós getur fagleg skoðun sparað þér mikinn tíma og kostnað.
3. Hvert er umfang rakans?
Leki er misalvarlegur en mikilvægt er að skoða umfang hans sem fyrst. Langvarandi leki getur valdið tjóni sem er ekki alltaf sýnilegt.
Merki um dýpri skemmdir:
- Veggjamálning byrjar að bólgna.
- Lykt af myglu eða sjáanleg myglumyndun.
Ef þú sérð þessi einkenni skaltu ekki reyna að laga lekann sjálfur – það þarf líklega faglega úttekt.
4. Fáðu fagmann í málið
Það mikilvægasta sem þú getur gert þegar þú tekur eftir leka er að bregðast við án tafar.
Það sem lítur út fyrir að vera saklaus rakablettur í dag getur innan örfárra vikna þróast í myglu, skemmdir á einangrun og jafnvel kostnaðarsamt tjón á burðarvirki. Þess vegna er ráðlagt að hafa samband við fagmann um leið og þú tekur eftir fyrstu merkjum um leka – jafnvel þótt þú sért ekki viss um umfang vandans.
Hvers vegna skiptir þetta máli:
- Fagmenn geta greint nákvæmlega hvaðan vatnið kemur og hvort það hafi þegar valdið skemmdum.
- Þeir geta metið hvort nægir að skipta um þéttingar eða hvort dýpri viðgerð sé nauðsynleg.
- Þeir koma einnig í veg fyrir að lekinn komi aftur síðar, sem sparar þér tíma og peninga.
Mikilvægt: Ekki fresta viðgerð. Að kalla til fagmann strax þegar þú tekur eftir leka er ódýrasta og öruggasta leiðin til að verja húsið þitt gegn miklum og kostnaðarsömum skemmdum.
5. Langtímalausn og forvarnir
Þegar búið er að laga lekann er gott að hugsa lengra fram í tímann. Margir gluggalekar koma aftur vegna þess að undirliggjandi orsök er ekki leyst – t.d. frárennsli, einangrun eða veðurálag.
Forvarnarráð:
- Láttu yfirfara glugga og þéttingar einu sinni á ári – helst á haustin.
- Íhugaðu að bæta vatnsvarnarlagi eða húðun á viðkvæma gluggaramma.
- Athugaðu kýttun – bæði við rúður og á mörkum steypu og timburs (áls).
Með reglulegu eftirliti og viðhaldi sparar þú bæði tíma og peninga til framtíðar.
Ráð frá fagmanni – Láttu Vættir sjá um verkið
Við hjá Vættum sérhæfum okkur í viðhaldi og endurbótum og höfum mikla reynslu af því að greina og leysa úr gluggalekum – hvort sem um er að ræða einungis raka eða umfangsmiklar skemmdir.
Ef þú hefur tekið eftir leka, jafnvel litlu rakamerki, er ráðlegt að láta okkur skoða vandann strax.
Við komum á staðinn, greinum orsökina og leggjum fram lausn áður en skemmdir verða meiri.
Hafðu samband við Vætti strax í dag til að bóka úttekt – það getur sparað þér hundruð þúsunda í framtíðinni.