← Til baka

Fimm atriði sem þú ættir að kanna áður en veturinn gengur í garð

5 mín

Íslenskur vetur reynir mikið á fasteignir; vindálag, rigning og frost til skiptis valda skemmdum sem ágerast ef ekki er brugðist við í tíma. Þegar kemur að viðhaldi gildir einföld regla; vandamál lagast ekki sjálfkrafa – þau versna aðeins með tímanum.

Því fyrr sem þú grípur inn í, þeim mun auðveldara og hagkvæmara er að leysa vandann og minni líkur eru á að þú lendir í stórum og kostnaðarsömum viðgerðum.

Til að hjálpa þér að búa húsið þitt undir vetrarveðrin höfum við tekið saman fimm lykilatriði sem vert er að skoða áður en veturinn gengur í garð.

1. Gluggar og hurðir

Vatn og vindar komast inn með þéttingum sem eru lausar eða slitnar og þar verða hitaskipti – kuldinn kemur inn og hitinn fer út. Skoðaðu allar þéttingar í kringum glugga og hurðir, einkum á norður- og suðausturhliðum (veðurálagshliðarnar).

Leiðbeiningar:

  • Þreifaðu á þéttilistum; ef þeir eru harðir og brotna auðveldlega eða eru lausir, er kominn tími á nýja.
  • Lítill kostnaður við nýjar þéttingar getur lækkað hitareikninginn verulega yfir veturinn.

2. Niðurföll og rennur

Mosi, lauf og rusl, s.s. pappi frá flugeldum og flugeldaprik, safnast með tímanum saman í rennum og niðurföllum. Þegar haustveðrin byrja stíflast rennur og niðurföll sem aftur getur valdið skemmdum á þaki og jafnvel leka inn í hús. Stíflaðar rennur valda því að þakkantar húsa skemmast vegna raka og fúa mun fyrr en eðlilegt er.

Leiðbeiningar:

  • Hreinsaðu rennur og niðurföll áður en frostin byrja.
  • Athugaðu sérstaklega tengipunkta, beygjur (hné) og niðurfallsrör til að tryggja að vatn renni óhindrað frá þakinu og niður í frárennsliskerfið.
  • Í grónum hverfum er skynsamlegt að setja upp rennugrindur til að minnka hættu á stíflun.

3. Þakið

Mest mæðir á veðurálagskápu þaksins (þakjárninu). Reglulega þarf að yfirfara neglingu eða skrúfur og leita að ryðblettum og öðrum þakskemmdum. Smávægilegar skemmdir í þakinu valda leka og smám saman ryðgjar járnið, mygla og fúi myndast í borðaklæðningu og jafnvel sperrum og þá er afar kostnaðarsamt að laga eða jafnvel endurbyggja þakið.

Góð þakeinangrun minnkar hitatap og orkunotkun. Vel þarf að huga að réttri öndun þaka en stíflun eða bilun í öndunarkerfi er algeng ástæða fyrir fúa og myglu í burðarvirki.

Leiðbeiningar:

  • Farðu kerfisbundið yfir allan þakflötinn í leit að lausu þakjárni, nöglum, skrúfum og ryði.
  • Láttu fagmann athuga undirþakið (burðarvirkið, einangrun og öndun) ef þú ert í vafa.
  • Athugaðu loftun á háalofti – léleg loftun veldur raka.

4. Hitakerfið

Í nær öllum tilvikum eru vatnshitakerfi notuð til hitunar íbúðarhúsnæðis, opinberra bygginga og annarra bygginga á þéttbýlissvæðinu á Suðvesturhorni Íslands. Dreifikerfi hitaveitu og vatnsveitu er býsna öruggt en heimafyrir er að mörgu að gæta þegar kuldarnir koma.

Ef hitakerfið bilar að hluta til eða öllu leyti kólna húsin fljótt þegar frost er úti og vindar blása. Fyrir utan óþægindin geta orðið alvarlegar skemmdir ef rör frostspringa. Með reglulegri skoðun og viðhaldi eykur þú líkur á að kerfið virki vel þegar mest á reynir.

Leiðbeiningar:

  • Prófaðu hitakerfið á hverju hausti áður en frostin byrja og athugaðu hvort það hitnar jafnt.
  • Athugaðu hvernig ofnarnir hitna – að fullu, að hálfu eða alls ekki.
  • Farðu yfir ofnkrana og losaðu „pinnann“ sem vill festast.
  • Losaðu loft úr ofnum ef við á.
  • Athugaðu tengigrindina, þrýstijafnara og krana.
  • Athugaðu hvort einhverjar pípur leki eða séu tærðar.
  • Ef snjóbræðslukerfi er til staðar, skoðaðu hitastig vatnsins sem fer út í kerfið.

Ráðlegt er að fá fagmann til að skoða vatnshitakerfið reglulega. Rétt stillt hitakerfi eykur endingu og er orkusparandi.

5. Öryggiskerfið

Öryggismál margra heimila, fyrirtækja og stofnana eru oft vanrækt. Hér er átt við reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnarteppi, flóttaleiðir og öryggiskerfi hússins, þar á meðal innbrotavarnir.

Leiðbeiningar:

  • Skiptu reglulega um rafhlöður í reykskynjurum og prófaðu þá.
  • Láttu yfirfara og endurhlaða slökkvitæki samkvæmt leiðbeiningum.
  • Ef gas er notað, tryggðu að enginn gasleki sé til staðar og að gasskynjarar séu rétt staðsettir.
  • Gakktu úr skugga um að útilýsing sé í lagi, sérstaklega við innganga og stíga.
  • Skoðaðu læsingar á hurðum og gluggum, einkum á jarðhæð, í kjöllurum og bakatil.
  • Hugleiddu uppsetningu öryggismyndavéla með fjarvöktun.
  • Haltu öryggisæfingu með heimilisfólkinu.

Viltu láta fagmann fara yfir húsið?

Við hjá Vættum sérhæfum okkur í viðhaldi og endurbótum á húsnæði – allt frá smærri úttektum til stærri viðgerða. Ef þú ert í minnsta vafa um ástand þaks, hurða og glugga, hita- eða öryggiskerfisins er skynsamlegast að láta fagmann skoða það strax.

Hafðu samband við okkur og við komum á staðinn, metum stöðuna og gefum þér heildarráðgjöf áður en veturinn skellur á. Þetta er skynsamlegt að gera allan ársins hring, þó þörfin sé oft mest yfir vetrarmánuðina. Það er alltaf ódýrara að grípa tímanlega í taumana en að bregðast við þegar vandamálið er orðið að tjóni.